Margrét Guðvarðardóttir
miðvikudagur, júní 16, 2004
 

fimmtudagur, desember 11, 2003
 
Muse
Jæja, nú er langt síðan ég kom hérna inn á bloggið mitt, jah alveg tíu dagar. Ég var á alveg frábærum Muse tónleikum í Höllinni í kvöld. Það var gargandi stemning enda mjög gott band þarna á ferð.

Nú fara prófin að verða búin, ég fer nú bara í eitt og það er ekki fyrr en 18. des. þannig að ég er búin að vera í jólafríi núna undanfarna daga. Það er nóg að gera fyrir jólin og ekki seinna vænna að byrja að versla einhverjar jólagjafir.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra og óska öllum gleðilegra jóla
mánudagur, desember 01, 2003
 
Námskeiðið Upplýsingatækni og skólastarf
Mér hefur fundist þetta námskeið, Upplýsingatækni og skólastarf, hafa verið alveg hreint stórskemmtilegt. Þetta er að sjálfsögðu búið að vera mikil vinna en engu að síður skemmtileg. Alltaf ef ég hef átt að skila tveimur verkefnum í einu, í einhverju fagi og svo Upplýsingatækninni, þá hef ég alltaf tekið upplýsingtæknina fram yfir af því að það er svo gaman að vinna þessi verkefni. Ég hef að sjálfsögðu líka unnið hin verkefnin en þau hafa alltaf verið nr. 2 á listanum hjá mér.

Ég vil því bara þakka kennaranum og samnemendum mínum fyrir þennan frábæra áfanga þó svo við höfum nú ekki mikið hist þá hefur maður aðeins fylgst með í gegnum bloggið, þ.e. með því að skoða bloggið hjá hinum nemendunum.

Jæja segi þetta gott í bili, læt nú örugglega heyra í mér fyrr en síðar.
 
Loka höndin
Ég er búin að vera að leggja loka höndina á persónulega vefinn minn í dag. Hann er að verða nokkuð fínn að mér finnst. Ég er búin að setja inn myndir á tæknisöguna mína og einnig setti ég inn video af Alexöndru og Gabríel, ég setti það inn á skilasíðuna mína bara svona til gamans. Ég vann þau ekki í Movie Maker heldur í Adobe Premiere 2. Ég held að það gæti verið svolítið erfitt að keyra upp þessi myndbönd ef maður er ekki með ADSL tengingu.

Ég er líka búin að bæta aðeins við myndaalbúmið mitt, ég setti inn myndir af Gabríel í ungbarnasundi. Það er alltaf svo gaman að skoða svona myndir og ég tel að það sé aldrei nóg af þeim.

Ég held að ég sé búin að skila öllum þeim verkefnum sem ég hef átt að skila mjög samviskusamlega og hef tekið þátt í þeim umræðum sem ætlast var til af okkur. Öll verkefni og upplýsingar um þau eru að finna á skilasíðunni minni á persónulega vefnum mínum.
föstudagur, nóvember 28, 2003
 
Líður að lokum
Nú fer námskeiðið Upplýsingatækni og skólastarf að líða undir lok. Ég er búin að vera eitthvað að brasa við að leggja lokahönd á persónulega vefinn minn og ég held svei mér þá að hann sé að verða nokkuð góður. Ég held að allar tengingar virki vel og öll verkefni séu til staðar á síðunni.

Annars er ég núna líka búin að skoða powerpoint kynningarnar hjá hinum staðnemunum sem ég var ekki búin að skoða og mér finnst þetta rosalega flott hjá þeim. Einnig er ég búin að vera að skoða persónulegu vefina þeirra og mér finnst þeirra síður ekkert vera endilega betri en okkar sem erum búin að vera í þessum áfanga í fjarnámi. Það sem er betra er skólaverkefnið og Powerpoint kynningin þeirra þar sem þau fengu mun betri kennslu í því en við. Annars er þetta bara mjög svipað hjá öllum en mér finnst þó að hjá sumum eru tengingarnar ekki réttar, stundum er ekkert á bak við þær.

Ég á enn eftir að setja inn myndir á tæknisöguna mína, þvílíkt framkvæmdarleysi en ég skal sko láta ykkur vita þegar þær koma inn en það verður alla vega ekki seinna en á mánudag því það er jú þá sem við eigum að vera búin að skila því sem við ætlum að skila í þessum áfanga.
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
 
Ferilskrá
Í dag kláraði ég ferilskránna mína. Ég þarf reyndar kannski að setja inn betri mynd af mér en ég held að þetta sé í lagi eins og er. Ég setti ferilskrána upp í töflu til þess að hún kæmi sem best út. Einnig setti ég inn link á heimasíðuna sem ég gerði í fyrra í KHÍ bara svona til gamans.
 
Innlit hjá staðnemum
Í þessari lotu áttum við að líta á bloggið og skilasíðurnar hjá staðnemunum. Ég hef reyndar fylgst aðeins með þeim þar sem vinkonur mínar eru í þessum áfanga í staðnámi. Það eru þær Elín, Gyða, og Freydís. Ég er búin að skoða Powerpoint kynninguna þeirra sem er hreint ágæt. Einnig skoðaði ég aðra Powerpoint kynningu og það var hjá henni Margréti og kynningin henner er um tannhirðu. Þetta er mjög áhugaverð kynning. Þarna sýnir hún hvernig bursta eigi tennurnar og hvernig nota eigi tannþráð o.þ.h. Þessar kynningar koma bara vel út og ég heyrði allt sem sagt var.

Ég held að ef ég hefði haft aðeins meiri tíma í vetur þá hefði ég smellt inn svona video á kynninguna mína. Ég hef bara haft svo rosalega mikið að gera við að sinna honum Gabríel mínum sem er að verða 4 mánaða og henni Alexöndru minni ásamt öllum hinum fögunum sem ég er í. Kannski verð ég rosalega dugleg í jólafríinu og skelli svona video á kynninguna mína. Við sjáum nú til með það.

Einnig er ég búin að skoða stuttmyndirnar hennar Salvarar sem voru unnar í Movie maker. Þar var t.d. stuttmynd þar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti vor kom í heimsókn í Skipholtið. Það var allt í lagi að horfa á þessa mynd en hún far dálítið höktandi.

mánudagur, nóvember 24, 2003
 
Langt um liðið
Ja hérna, hvað tíminn líður hratt. Nú eru liðnir ansi margir dagar síðan ég hef skrifað í bloggið mitt en nú ætla ég að taka mig á. Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér í verkefna vinnu undanfarna daga.

Á miðvikudaginn síðasta gerðist ég rosalega góður tölvunörður því hún Gyða vinkona mín úr Kennó kom í heimsókn og ég var að aðstoða hana með persónulega vefinn sinn þar sem hún þurfti að flýta sér að klára hann. Þetta gekk nú bara sæmilega og ég gat deilt með henni minni vitneskju um tölvur og tölvumál.

Ég á enn eftir að setja inn myndir á tæknisöguna mína og á eftir að klára ferilskrána áður en ég vippa henni yfir á vefinn minn. Ég ætla að bæta úr þessu núna á næstu dögum.
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
 
Vangaveltur
Það er eitt sem ég er að spá í í sambandi við þessar breytingar mínar á blogginu, hvernig get ég breytt dagsetningunni, það stendur alltaf t.d. miðvikudagur, nóvember 12, 2003 en ég mundi vilja hafa þetta, miðvikudagur, 12. nóvember 2003. Ef það er einhver sem les þetta og veit hvernig á að breyta þessu þá má hinn sami senda mér e-mail á margo@internet.is. Kærar þakkir.
 
Skipti um template
Ég ákvað að vera soldið klár núna í kvöld og skipti um template á síðunni minni. Ég var frekar smeik í byrjun en svo var þetta bara ekkert mál. Ég á reyndar eftir að gera meira og kannski ég breyti aftur um template en þetta var alla vega góð byrjun. Finnst ykkur ekki. Þá þarf ég núna að koma inn comments og ég ætla að reyna að gera það á morgun. Góða nótt og bless í bili.

Powered by Blogger